Kotstrandarkirkja
Kotstrandarkirkja — Árvakur/Þorkell Þorkelsson
Orð dagsins: Verkamenn í víngarði.
AKRANESKIRKJA | Messa kl. 14.

ÁRBÆJARKIRKJA | Tónlistarguðsþjónusta kl. 11. Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu, sr. Sigrún Óskarsdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Kirkjukaffiveitingar.

ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón Hildar Bjargar og Elíasar. Messa kl. 14. Séra María Ágústsdóttir héraðsprestur þjónar fyrir altari og predikar. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi í boði sóknarnefndar að messu lokinni.

ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Sunnudagaskóli á sama tíma. Prestur Bára Friðriksdóttir, tónlistastjóri Helga Þórdís Guðmundsdóttir. Kaffi á eftir og ávextir fyrir börnin.

BORGARNESKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.30. Messa kl. 14. Guðsþjónusta á Dvalarheimili aldraðra kl. 15.30. Sóknarprestur

BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalarnesi | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir og Rannveig Ásgeirsdóttir annast stundina. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur.

BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli Jónasson, kór Breiðholtskirkju syngur, organisti Julian Isaacs. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Nínu Bjargar, Lindu Rósar og Jóhanns Axels. Kaffisopi eftir messu.

BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Fjölskyldusamvera með söng og fræðslu. Foreldrar hvattir til þátttöku með börnunum. Ungmennahljómsveit spilar undir stjórn Renötu Ivan. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bústaðakirkju syngur undir stjórn Renötu Ivan. Molasopi eftir messu. Pálmi Matthíasson.

DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Magnús Björn Björnsson, organisti Kjartan Sigurjónsson, kór Digraneskirkju, A-hópur. Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu. Léttar veitingar að messu lokinni. www digraneskirkja.is.

DÓMKIRKJAN | Æðruleysismessa kl. 20. Sr. Hjálmar Jónsson predikar, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir og sr. Þorvaldur Víðisson þjóna einnig. Bræðrabandið og Anna Sigríður Helgadóttir sjá um tónlistina.

DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir predikar, dómkórinn syngur, organisti er Marteinn Friðriksson. Barnastarf á kirkjuloftinu. Biskup Íslands vígir tvo djákna kl. 14. Vígð verða Aðalheiður Jóhannsdóttir, kölluð til djáknaþjónustu í Lögmannshlíðarsókn í Eyjafjarðarprófastsdæmi, og Ármann Gunnarsson, kallaður til djáknaþjónustu í Garðasókn, Kjalarnessprófastsdæmi.

EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunndagaskóli kl. 11. Messa kl. 14. Organisti Torvald Gjerde. Kyrrðarstund 21. jan. kl. 18.

FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson, félagar úr kór Fella- og Hólakirkju leiða almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma.

FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Edda, Örn og Erna. Kvöldguðsþjónusta, altarisganga kl. 20. Fríkirkjukórinn syngur undir stjórn Arnar Arnarsonar.

FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Kennsla, söngur o.fl. Almenn samkoma kl. 14. Margrét S. Björnsdóttir predikar, lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir. Á eftir er kaffi og samfélag og verslun kirkjunnar opin.

FRÍKIRKJAN, Reykjavík | Messa og barnastarf kl. 14. Fermingarbörn taka virkan þátt í messunni, barn verður borið til skírnar. Sr. Ása Björk þjónar og predikar, altarisganga. Vöfflukaffi í safnaðarheimili eftir messuna. Barnastarfið hefst í kirkjunni og flyst síðan í safnaðarheimilið.

GLERÁRKIRKJA | Barnastarf og messa kl. 11. Sr. Arnaldur Bárðarson þjónar, organisti er Hjörtur Steinbergsson. Félagar úr Kór Glerárkirkju leiða söng. Kvöldguðsþjónusta með léttri tónlist kl. 20.30. Ragga, Snorri og Kristján leiða söng. Bæn og lofgjörð. Kaffi í safnaðarsal.

GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Foreldrum og fermingarbörnum úr Húsaskóla og Rimaskóla sérstaklega boðið. Prestar eru sr. Bjarni Þór Bjarnason og sr. Vigfús Þór Árnason. Kór Grafarvogskirkju syngur, organisti Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Eftir messu verður fjallað um fermingardaginn og atriði er lúta að fermingunni. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna. Undirleikari Stefán Birkisson.

GRAFARVOGSKIRKJA - Borgarholtsskóli | Sunnudagaskóli kl. 11 í Borgaholtsskóla. Séra Lena Rós Matthíasdóttir. Umsjón Gunnar og Dagný, undirleikari Guðlaugur Viktorsson.

GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu, Lilju Irenu o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga, samskot í líknarsjóð. Messuhópur þjónar, kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng, organisti Árni Arinbjarnarson, prestur sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Molasopi eftir messu.

GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Guðmundur Þorsteinsson messar, organisti Kjartan Ólafsson. Félag fyrrum þjónandi presta.

HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa í Hásölum kl. 11. Altarisganga. Prestur sr. Gunnþór Þ. Ingason, kantor Guðmundur Sigurðsson, Barbörukórinn í Hafnarfirði syngur. Sunnudagaskólar í Strandbergi og Hvaleyrarskóla á sama tíma.

HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni, fermingarbörn aðstoða. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar, organisti Björn Steinar Sólbergsson.

HÁTEIGSKIRKJA | Barnaguðsþjónusta og messa kl. 11. Umsjón barnaguðsþj. Erla Guðrún og Páll Ágúst. Prestur Tómas Sveinsson, organisti Douglas A. Brotchie. Léttar veitingar eftir messu.

HJALLAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar, félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng, organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskóli kl. 13. Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. www.hjallakirkja.is.

HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Samkoma kl. 17. Kapteinarnir Ester og Wouter Gooswilligen tala og syngja. Lofgjörð og söngur.

HJÁLPRÆÐISHERINN, Reykjavík | Samkoma kl. 20. Umsjón Ragnheiður Jóna Ármannsdóttir og Trond Are Schelander. Heimilasamband fyrir konur á mánudag kl. 15. Opið hús daglega kl. 16-17.30 nema mánudaga.

HJÚKRUNARHEIMILIÐ Ás | Guðsþjónusta kl. 15.

HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11.

HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Helgi Guðnason. Bible studies at 12.30 in the main hall. Almenn samkoma. kl. 16.30. Ræðumaður Vörður Leví Traustason, Gospelkór Fíladelfíu leiðir söng. Aldursskipt barnakirkja, börn 1-13 ára. Bein útsending á Lindinni FM 102,9 eða á www.filadelfia.is.

KAÞÓLSKA KIRKJAN:

Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og á laugardag kl. 18.

Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru í Reyðarf. | Messa kl. 11.

Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30.

Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8.

Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.

Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er messa á latínu kl. 8.10. Laugardaga er barnamessa kl. 14 að trúfræðslu lokinni.

Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30.

Ísafjörður | Messa kl. 11.

Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mánuði kl. 16.

Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í mánuði kl. 16.

Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga er messa á ensku kl. 18.30.

Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðvikudaga kl. 20.

KFUM og KFUK | Lofgjörðarvaka kl. 20 á Holtavegi 28. Sr. Ragnar Gunnarsson flytur hugleiðingu.

KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Sunnudagskóli í safnaðarheimilinu kl. 13. Umsjón hafa Lilja Dögg Bjarnadóttir og María Rut Baldursdóttir.

KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.

KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Prestur er sr. Auður Inga Einarsdóttir, organisti Lenka Mátéová, kór Kópavogskirkju syngur.

LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landspítala í Fossvogi á 4. hæð kl. 10.30, sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, organisti Helgi Bragason.

LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson, organisti Jón Stefánsson, félagar í Kór Langholtskirkju syngja. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin í safnaðarheimilið. Kaffi eftir messuna. Tónleikar Kammerkórsins ásamt djasshljómsveit eru kl. 20.

LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Kór Laugarneskirkju syngur undir stjórn Gunnars Gunnarssonar organista, sr. Bjarni Karlsson þjónar ásamt Sigurbirni Þorkelssyni meðhjálpara og hópi sjálfboðaliða. Messukaffi Gunnhildar Einarsdóttur kirkjuvarðar bíður svo allra að guðsþjónustu lokinni.

LÁGAFELLSKIRKJA | Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir söng, organisti Jónas Þórir, einleikari á fiðlu Hjörleifur Valsson, prestur Ragnheiður Jónsdóttir. Sunnudagaskóli í kirkjunni kl. 13 í umsjón Hreiðars og Jónasar.

MÖÐRUVALLAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Öll börn fædd 2002 eru sérstaklega boðin velkomin og fá þau afhenta bókina Kata og Óli fara í kirkju. Almennur söngur fyrir alla fjölskylduna. Sóknarprestur.

NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur, organisti Steingrímur Þórhallsson, sr. Sigurður Árni Þórðarson predikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í kirkju en fara síðan til sinna starfa. Unglingar úr NEDÓ sjá um sölu á súpu og brauði og verða með kökubasar til styrktar ferðasjóði sínum.

NJARÐVÍKURKIRKJA, Innri-Njarðvík | Sunnudagskóli kl. 11. Umsjón hafa Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir, Dagmar Kunakova og Jenný Þórkatla Magnúsdóttir. Aðalsafnaðarfundur Innri-Njarðvíkursóknar verður haldinn 27. janúar nk. að lokinni messu sem hefst kl. 11.Venjuleg aðalfundarstörf.

SALT, kristið samfélag | Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Samkoma kl. 17. Haraldur Jóhannsson talar um sjálfsaga. Lofgjörð og fyrirbæn. Barnastarf.

SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Feðginin Vilhjálmur E. Eggertsson og Hanna Vilhjálmsdóttir, sem á að fermast í vor, lesa ritningarlestra. Barnasamkoma kl. 11.15. Léttur hádegisverður á eftir. Guðsþjónustur á Ljósheimum og á sjúkrahúsi kl. 14.30 og 15.15.

SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Söngur, saga. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson predikar, Kór Seljakirkju syngur, organisti Bjartur Logi Guðnason. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðsson predikar, Þorvaldur Halldórsson leiðir tónlistina ásamt kirkjukórnum.

SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kammerkór kirkjunnar leiðir tónlistarflutning undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar organista. Sunnudagaskólinn er á sama tíma. Prestur er Hans Markús Hafsteinsson.

SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Nemendur á söngnámskeiði í Skálholti syngja í messunni. Sóknarprestur.

SKEIÐFLATARKIRKJA í Mýrdal | Guðsþjónusta kl. 14. Organisti er Kitty Kovács, kirkjukórar Skeiðflatar- og Víkurkirkna syngja. Fermingarbörn og foreldrar hvött til að mæta. Sóknarprestur.

STÆRRA-Árskógskirkja | Guðsþjónusta kl. 14.

VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Stund fyrir börn á öllum aldri. Guðsþjónusta kl. 13. Kór Víðistaðasóknar syngur létta söngva undir stjórn Úlriks Ólasonar.

YTRI-Njarðvíkurkirkja | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar leiðir söng undir stjórn Gunnhildar Höllu Baldursdóttur. Meðhjálpari Gyða Minný Sigfúsdóttir. Sunnudagskóli kl. 11. Umsjón hafa Hanna Vilhjálmsdóttir og María Rut Baldursdóttir.

(Matt. 20)

(Matt. 20)

Höf.: (Matt. 20)