Quesadillas með kjúklingi (má nota annað kjöt í staðinn). Hægt er að útbúa quesadillas á marga vegu og tilvalið að nota afganga. Tortilla og ostur er undirstaðan en svo er hægt að leika sér með fyllinguna.

Quesadillas með kjúklingi (má nota annað kjöt í staðinn). Hægt er að útbúa quesadillas á marga vegu og tilvalið að nota afganga. Tortilla og ostur er undirstaðan en svo er hægt að leika sér með fyllinguna. Ef útbúið fyrir krakka er nóg að setja bara ost og til dæmis nautahakk.

Hráefni:

*Tortilla stór (helst frosna, þær eru miklu betri en þær sem eru í hillunum)

*Ostur, rifinn

*Salsasósa (sterk eða mild eftir smekk)

*Græn paprika, rauðlaukur og sveppir steikt á pönnu

*Kjúklingabringur (grillaðar og kryddaðar) skornar í bita (eða annað kjöt að eigin vali)

Aðferð:

Dreifið salsasósunni á tortilluna, setjið rifinn ost, steikta grænmetið og kjúklinginn á helminginn. Ost svo aftur ofan á og brjótið tortillu saman. Betra er að hafa minna í hverri tortillu en meira því þá hitnar hún auðveldlega í gegn. Einnig er mikilvægt að jafnvægi sé á milli brauðs, osts og fyllingar. Hitið í ofni eða á þurri pönnu þar til osturinn er bráðnaður og tortillan er stökk. Skerið í sneiðar og berið fram með sýrðum rjóma og guacamole. Það er voða gott að hafa nachos-flögur og ostasósu með þessu. Veljið nachos sem er ekki mikið kryddað, helst bara saltað. Krydduðu flögurnar taka alltof mikið frá matnum.

Guacamole

Hráefni:

*2 avocado stöppuð

*¼ laukur (smátt saxaður),

*2 msk. kóriander ferskt smátt saxað

*½-1 rauður chili smátt saxaður

*lime-safi

*salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

Blandið saman og smakkið til.