Skoskir straumar Köflótt mynstur settu svip sinn á D&G-línu Dolce og Gabbana, sem hér sést að ofan, og eins á sýningarpalla Dsquared2.
Skoskir straumar Köflótt mynstur settu svip sinn á D&G-línu Dolce og Gabbana, sem hér sést að ofan, og eins á sýningarpalla Dsquared2. — Reuters
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.

Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur

annaei@mbl.is

Rokk og ról, erfiðisvinna, framandi slóðir og þau klæðahöft sem konur hafa sætt sig við voru meðal þess sem fatahönnuðir á borð við Miuccia Prada og Alexander McQueen nýttu sem innblástur fyrir haust- og vetrartísku karla 2008, sem sýnd var í Mílanó í vikunni.

Hjá Miuccia Prada lofuðu hreinar og einfaldar línur ásamt eintóna litapallettu góðu fyrir tísku komandi vetrar þó hagnýt vetrarklæði á borð við frakka, trefla og hatta væru víðs fjarri. Aðspurð svaraði hönnuðurinn því hlæjandi að þessi lína væri hennar hefnd gegn þeim félagslegu og klæðalegu höftum sem karlar legðu á konur! Hún vísar þar væntanlega til þess að hugtök á borð við hagnýtingu og notagildi virðast sjaldnast ofarlega á blaði þegar fatahönnuðir úr röðum karla leggja línurnar í kvenfatatískunni.

Notagildi var Thomasi Maier, hjá lúxustískuhússinu Bottega Veneta, hins vegar ofarlega í huga að þessu sinni, en Maier leitaði innblásturs hjá hinum vinnandi manni. „Við vorum að velta notagildinu fyrir okkur og tengslunum milli þess hvaða starfi maðurinn gegnir og hverju hann klæðist svo,“ hefur New York Times eftir Maier. Það má þó gefa sér að sterkefnaðir viðskiptavinir tískuhússins búi við veruleika sem er gjörólíkur lífi verkamannsins sem Maier leitaði í smiðju til og að verðið sé öllu hærra en verkamaðurinn ræður við. Efnismiklar buxur hönnuðarins, þröngir jakkar, þykk gallaefni og svonefndir hversdagsfrakkar skiluðu hins vegar tískusýningu sem að mati New York Times var með þeim betri sem fyrir augu bar í Mílanó að þessu sinni.

Alexander McQueen fékk líka hrós hjá blaðinu fyrir vel heppnaða línu sem einkenndist af ljóðrænu og flökkustíl. Hönnuðurinn ferðaðist um Rajasthan og Kerala á Indlandi í mánuð í leit að rétta andanum og er útkoman sterk snið með fínlegum indverskum áhrifum t.d. með notkun víravirkis og útsaums í hönnuninni.

Páfuglsmunstur og snákaskinn

Rokkið var síðan alls ráðandi hjá Gucci enda kvaðst hönnuðurinn Frida Giannini vera í rússneska rokk-gírnum. Og hjá Gucci var glamúr-rokkið svo sannarlega áberenda, enda var á sýningarpöllunum að finna trefla með páfuglsmynstri, óriffluð flauelsefni, sígaunaleg vafningsbelti, gróf stígvél og svo fyrirsætur með þykkan, dökkan augnblýant.

Glitkóngurinn Roberto Cavalli var hins vegar öllu stilltari en venjulega – hér voru það jakkaföt með sterkum öxlum og þröngu mitti ásamt víðum buxum sem settu svip sinn á línuna, þó jakkar úr snákaskinni og notkun á dýramynstri gætu fullvissað fasta fylgismenn hönnuðarins um að Cavalli er og verður Cavalli.

Fátt kom heldur á óvart hjá Giorgio Armani – hönnunin öguð og klæðileg og þar af leiðandi vel við hæfi íhaldssamra viðskiptajöfra, sem óneitanlega gæti þó verið einkar gaman að sjá bregða sér í pínupils af sýningarpalli Miuccia Prada.