KVOS, eignarhaldsfélagið sem á m.a. prentsmiðjuna Odda og Kassagerðina, hefur stofnað dótturfyrirtæki í Færeyjum til að halda utan um sölustarfsemi félagsins þar.
KVOS, eignarhaldsfélagið sem á m.a. prentsmiðjuna
Odda
og Kassagerðina, hefur stofnað dótturfyrirtæki í
Færeyjum
til að halda utan um sölustarfsemi félagsins þar. Fyrirtækið hefur fengið nafnið
Kassagerðin
Føroyar P/F en því er ætlað að styrkja
stöðu
Kassagerðarinnar í Færeyjum, að því er segir í tilkynningu. Með stofnun fyrirtækisins í Færeyjum vilja stjórnendur Kvosar taka sölu og markaðssetningu í eigin hendur og
efla
samskipti við viðskiptavini.