ÚRVALSVÍSITALA íslensku kauphallarinnar hækkaði um 0,3% í gær og endaði í 5.531 stigi. Lækkun hennar frá áramótum nemur nú 12,5%. Mest hækkaði verð hlutabréfa í Teymi í gær, um 2,03% og Exista um 1,36%. Hlutabréf í Icelandair lækkuðu mest, um 0,91%.
ÚRVALSVÍSITALA íslensku kauphallarinnar hækkaði um 0,3% í gær og endaði í 5.531 stigi. Lækkun hennar frá áramótum nemur nú 12,5%. Mest hækkaði verð hlutabréfa í Teymi í gær, um 2,03% og Exista um 1,36%. Hlutabréf í Icelandair lækkuðu mest, um 0,91%. Utan vísitölunnar hækkaði verð bréfa í Flögu mest í kauphöllinni, um 1,85%, en bréf í Century Aluminium lækkuðu mest, um 8,47%. Alls námu hlutabréfaviðskipti 2,7 milljörðum .