Amy Winehouse Er hrifin af Bob Marley.
Amy Winehouse Er hrifin af Bob Marley. — Reuters
TÓNLISTARKONAN Amy Winehouse er á leiðinni til Jamaica til að fá anda Bob Marley í tónlist sína. Winehouse er mikill aðdáandi reggae-goðsins sem lést árið 1981 aðeins 36 ára að aldri. Hún ætlar að vinna með syni Marley, Damian Marley sem hefur m.

TÓNLISTARKONAN Amy Winehouse er á leiðinni til Jamaica til að fá anda Bob Marley í tónlist sína. Winehouse er mikill aðdáandi reggae-goðsins sem lést árið 1981 aðeins 36 ára að aldri. Hún ætlar að vinna með syni Marley, Damian Marley sem hefur m.a unnið til Grammy-verðlauna. Með því vonast hún að ná að fylgja eftir vinsældum seinustu plötu sinnar, Back to Black .

„Ég elska Jamaica og ég vil finna anda Bob Marleys í tónlist minni. Ég vil dvelja þar sem hann bjó og hanga með Damian því hann er snillingur,“ heyrðist Winehouse segja við vini sína á krá í London nýlega.

Eiginmaður Winehouse, Blake Fielder-Civil, situr enn í fangelsi og hlakkar hún mikið til að komast í burtu frá Bretlandi og í sólina á Jamaica.

„Hún vill forðast öll vandræðin heima um tíma og bara kasta sjálfri sér út í tónlistina. Hún hefur alltaf elskað Marley og langar að það verði smá reggae-taktur á næstu plötu,“ segir vinur söngkonunnar.