Í þessari viku eigið þið að taka þriðja bókstaf úr heiti dýranna á myndinni. Þá eruð þið allt í allt komin með átta bókstafi sem þið getið sett saman og fengið þá litríkt lausnarorð. Lausnina skrifið þið á blað og sendið inn fyrir 26. janúar næstkomandi. Þá eigið þið möguleika á að vinna bókina Dalur risabeinagrindanna. Munið að láta fylgja með upplýsingar um nafn heimilisfang og aldur.
Framan á umslagið skrifið þið:
Morgunblaðið
Börn - verðlaunaleikur
19. janúar 2008
Hádegismóum 2
110 Reykjavík
Fyrir tveimur vikum áttuð þið að telja skóflur. Dregið var úr réttum lausnum og þeir heppnu fá DVD-diskinn Leitin að Nemó.
Vinningshafar:
7 ára
Hverafold 128
112 Reykjavík
Ásdís Gunnarsdóttir
8 ára
Réttarbakka 7
109 Reykjavík
Guðrún Edda Kjartansdóttir
8 ára
Illugagötu 34
900 Vestmannaeyjum
Sóley Björk Þorsteinsdóttir
7 ára
Jafnakri 6
210 Garðabæ
Diljá Baldursdóttir
10 ára
Lyngrima 10
112 Reykjavík
Til hamingju krakkar! Þið fáið DVD-diskinn sendan heim á næstu dögum.