Erró
Erró
LISTAMAÐURINN Erró mun árita bókina Erró í tímaröð – líf hans og list í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan 11 í dag. Með hverri seldri bók fylgir áritað og númerað grafíkverk sem hægt er að fella inn í bókina.
LISTAMAÐURINN Erró mun árita bókina Erró í tímaröð – líf hans og list í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan 11 í dag. Með hverri seldri bók fylgir áritað og númerað grafíkverk sem hægt er að fella inn í bókina. Um tvenns konar grafíkverk er að ræða en einungis 100 eintök eru til af hvorri mynd. Í för með Erró er höfundur bókarinnar, Danielle Kvaran listfræðingur, sem búsett er í Noregi, og mun hún einnig árita bókina. Erró og Danielle munu einnig árita bókina og gefa áðurnefnd grafíkverk á Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi klukkan 14.