Orðavaðall „Voðalega getur maðurinn talað,“ gæti Guðlaugur Þór verið að hugsa.
Orðavaðall „Voðalega getur maðurinn talað,“ gæti Guðlaugur Þór verið að hugsa. — Morgunblaðið/Ómar
GESTIR í spurningaleiknum Orð skulu standa í dag eru Guðmundur Þórhallsson kennslustjóri og Hreinn Sigmarsson flotastjóri. Á milli þess sem þeir velta fyrir sér m.a.

GESTIR í spurningaleiknum Orð skulu standa í dag eru Guðmundur Þórhallsson kennslustjóri og Hreinn Sigmarsson flotastjóri. Á milli þess sem þeir velta fyrir sér m.a. orðunum „saurljótur“ og „hispurslaus“ botna þeir fyrripart um ný vinnubrögð á Alþingi:

Upphefst núna aftur mas,

þó öllu styttra en forðum.

Um nýliðna helgi var fyrriparturinn þessi:

Búin gleði og gaman er,

gráminn tekur völdin.

Í þættinum botnaði Hlín Agnarsdóttir:

Vænt er þegar vora fer

vini að gleðja á kvöldin.

Sigrún Valbergsdóttir var í miklu stuði:

Við aringlæður orna mér

allra næstu kvöldin.

Maginn eftir situr sver,

syrgir veisluhöldin.

Hagkerfið nú hitar mér,

hækka komugjöldin.

Nályktina leggur hér

leikhúss bak við tjöldin.

Davíð Þór Jónsson:

Þá er gott að gamna sér

með góðri frú á kvöldin.

Úr hópi hlustenda sendi Þorvaldur Óskarsson þennan:

Til Kanarí nú kem ég mér

og konan sér um gjöldin.

Jón Helgason á Hellu:

Viskístaup því væri hér

velkomið á kvöldin.

Sigurður Einarsson í Reykjavík:

En bráðum líka bæta fer

í birtuna á kvöldin.

Magnús Halldórsson á Hvolsvelli:

Spikfeit þjóð í sporthús fer

og spásserar á kvöldin.

Sigurlín Hermannsdóttir:

Drjúgt var keypt í desember;

nú dembast yfir gjöldin.

Guðlaug Freyja Löve:

Björninn útbýr heilan her

sem hefur tögl og höldin.

Hallberg Hallmundsson:

Þá er ljúft að leika sér

við ljóðastef á kvöldin.

Auðunn Bragi Sveinsson orti m.a.:

Þar til aftur elda fer

og eyðast skuggatjöldin.

Ingólfur Ármannsson:

Þá í bólið feginn fer

með frúnni snemma á kvöldin.

Daníel Viðarsson:

Seint á fætur sólin fer

og syfjuð er á kvöldin.

Jónas Frímannsson hugsaði til friðarsúlunnar:

Lampi Jóku lýsir mér

lengur ekki á kvöldin.

Hlustendur geta sent sína botna á netfangið ord@ruv.is eða bréfleiðis til Orð skulu standa, Ríkisútvarpinu, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík.