Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„ÞESSAR auglýsingar endurspegla vel brennandi áhuga [Helga] á málefnum aldraðra og ég fagna því,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra en Helgi Vilhjálmsson birti í gær opnuauglýsingar í dagblöðum, þar sem hann...

„ÞESSAR auglýsingar endurspegla vel brennandi áhuga [Helga] á málefnum aldraðra og ég fagna því,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra en Helgi Vilhjálmsson birti í gær opnuauglýsingar í dagblöðum, þar sem hann skorar á Jóhönnu að beita sér fyrir lagabreytingum sem geri lífeyrissjóðum kleift að fjárfesta fyrir hluta innkomu sinnar í húsnæði fyrir aldraða. „Hann vill að lífeyrissjóðirnir byggi húsnæði fyrir eldri borgara en hann verður líka að líta á hina hlið málsins, sem er að lífeyrissjóðirnir hafa þá skyldu fyrst og fremst að tryggja lífeyrisþegum viðunandi lífeyri og þeir verða því alltaf að hafa í huga að hámarka ávöxtun sjóðanna,“ segir Jóhanna. „Ef sjóðirnir eiga að koma inn í fjármögnun á húsnæðismálum aldraðra verða þeir að fá viðunandi raunávöxtun á sínu fjármagni og það má vel vera að eins og hlutabréfamarkaðurinn er núna sé það skynsamleg ákvörðun að fara þá fjárfestingarleið sem Helgi nefnir.

Vill heyra frá lífeyrissjóðunum

Ég tek líka eftir að Helgi segir að stjórnendur sjóðanna haldi því fram að það strandi einungis á lagasetningu. Þeir hafa ekki, að því er ég best veit, komið þeirri skoðun sinni á framfæri við stjórnvöld. Það væri þá ágætt að heyra skoðun þeirra á því. Það er rétt að finna þarf nýjar leiðir til að hraða t.d. uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða og fækka fjölbýli. Við erum að skoða í mínu ráðuneyti hvernig hægt er að gera það og erum við að skoða nýjar fjármögnunarleiðir í því sambandi.“