Karlmaður var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur systurdætrum sínum. Önnur stúlkan var 5 ára þegar að brotin voru framin á árunum 1993 og 1994.

Karlmaður var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur systurdætrum sínum. Önnur stúlkan var 5 ára þegar að brotin voru framin á árunum 1993 og 1994. Hin stúlkan var á aldrinum þriggja til ellefu ára og braut maðurinn margsinnis gegn henni á árunum 1991 til 2001. Maðurinn lét stúlkurnar snerta kynfæri sín og hafa við sig munnmök ítrekað. Dómurinn segir atferli mannsins svívirðilegt og hann eigi sér engar málsbætur. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða annarri stúlkunni eina og hálfa milljón króna í bætur og hinni stúlkunni hálfa milljón króna. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða sakarkostnað.

mbl.is