Hættir með námskeiðahald á Íslandi Frá Guðjóni Bergmann: „ÞEGAR að ég söðlaði um og lokaði Jógamiðstöðinni um mitt ár 2006 til að hefja fyrirlestra- og námskeiðahald undir fyrirsögninni „Þú ert það sem þú hugsar“ þá var konan mín þegar...

Hættir með námskeiðahald á Íslandi

Frá Guðjóni Bergmann:

„ÞEGAR að ég söðlaði um og lokaði Jógamiðstöðinni um mitt ár 2006 til að hefja fyrirlestra- og námskeiðahald undir fyrirsögninni „Þú ert það sem þú hugsar“ þá var konan mín þegar farin að huga að framhaldsnámi í Bandaríkjunum að loknu viðskiptanámi í HR. Því má segja að námskeiðahaldi mínu undir þessum formerkjum á Íslandi hafi ekki verið ætlað lengra líf en tvö ár frá upphafi.

Ofangreind námskeið hafa fengið frábærar viðtökur, sömuleiðis samnefnd bók, afleiddir fyrirlestrar og önnur námskeið. Fyrir það er ég mjög þakklátur. En við hjónin ætlum að standa við áður nefndar áætlanir og munum því fara af landi brott í haust þar sem konan mín, Jóhanna Bóel, mun hefja framhaldsnám í Bandaríkjunum. Við eigum að auki von á okkar öðru barni í júní og því mun ég bregða mér í hlutverk heimavinnandi föður fyrstu eitt til tvö árin á erlendri grund og hlakka mikið til að sinna börnunum mínum og styðja konuna mína til dáða í námi.

Þessi umskipti hafa þá merkingu að ég mun hætta öllu námskeiðahaldi hér á landi í júní á þessu ári. Þeir sem hafa haft hug á að nýta sér námskeiðið „Þú ert það sem þú hugsar“ hafa til þess þrjá möguleika í Reykjavík, í febrúar, apríl og maí, auk þess sem ég verð með námskeið á Ísafirði, Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum í mars og apríl. Á vefsíðunni www.gbergmann.is er kominn listi yfir námkvæmar dagssetningar og önnur námskeið sem verða í boði fram til 7. júní.

Í Bandaríkjunum mun ég væntanlega halda áfram einhverjum ritstörfum þegar hægist á bleiuskiptum og mun að sjálfsögðu halda sambandi við Íslendinga í gegnum fréttabréfin mín, bloggsíðu og jafnvel einhver önnur fjölmiðlatengsl.“

Ég veiti nánari upplýsingar í síma 690-1818 og í gegnum tölvupóst gudjon@gbergmann.is.

Óvirðing við landann

VIÐ erum fjölmörg sem rjúkum ekki út og sprengjum rakettur rétt fyrir miðnætti á gamlárskvöld, heldur njótum þess að sitja í ró og næði fyrir framan sjónvarpið og njótum hátíðlegrar stundar er nýja árið gengur í garð. Ekki spillir þá að hafa gott menningarlegt efni í sjónvarpinu eins og hefur verið undanfarin ár, og þá sérstaklega meðan Markús Örn var við stjórnvölinn. En í ár var þetta til skammar og sýndar gamlar lummur sem voru látnar rúlla viðstöðulaust, öllum til ama er á horfðu. Ég skora á Pál útvarpsstjóra að kippa þessu í liðinn.

Guðrún.


Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is