Skyrkaka Hráefni: *1 pakki kanilkex frá Lu, mulið (Bastogne) *80 g brætt smjör *5 dl rjómi, þeyttur *500 g KEA vanilluskyr *3 msk.
Skyrkaka

Hráefni:

*1 pakki kanilkex frá Lu, mulið (Bastogne)

*80 g brætt smjör

*5 dl rjómi, þeyttur

*500 g KEA vanilluskyr

*3 msk. bláberjasulta

*150 g bláber

*200 g jarðarber

Aðferð:

Blandið kexmylsnunni og smjörinu saman og þrýstið á botninn á vel smurðu smelluformi. Hrærið rjómann varlega saman við vanilluskyrið og hellið ofan á kexbotninn. Setjið bláberjasultuna gætilega ofan á, ásamt bláberjum og jarðarberjum sem hafa verið skorin í bita. Það er í góðu lagi að útbúa skyrtertuna daginn áður, en hún þarf allavega að standa í kæli í 3-4 klukkustundir áður en hún er borin fram.