Þorvaldur Þorsteinsson opnar myndlistarsýninguna Leikmyndir í Populus Tremula á Akureyri í dag, laugardaginn 19. janúar klukkan 14. Um leið kemur út bókin Mónólógar eftir Þorvald.

Þorvaldur Þorsteinsson opnar myndlistarsýninguna Leikmyndir í Populus Tremula á Akureyri í dag, laugardaginn 19. janúar klukkan 14. Um leið kemur út bókin Mónólógar eftir Þorvald.

Í kvöld verður svo kvöldskemmtun á staðnum þar sem stórleikarar lesa úr nýútkominni bók ásamt höfundinum sjálfum. Sickbird leikur sína eigin tónlist með stórsveit skipaðri Arnari Tryggvasyni, Kristjáni Edelstein, Ingva Rafni Ingvasyni, Pálma Gunnarssyni og Togga skyttu. Aðgangur að kvöldskemmtuninni er ókeypis og húsið verður opnað klukkan 21.30.

Sýning Þorvaldar verður einnig opin á morgun, sunnudaginn 20. janúar á milli klukkan 14 og 17, en hún verður einungis opin þessa einu helgi.