Á andlitinu er ég með bleikan og svolítið áberandi kinnalit ásamt svörtum augnblýanti og gráum augnskugga. Ég nota svartan blýant mjög mikið, enda strokar hann út roða í kringum augun og getur gert heilmikið. Eins set ég hann inn í augun.
Á andlitinu er ég með bleikan og svolítið áberandi kinnalit ásamt svörtum augnblýanti og gráum augnskugga. Ég nota svartan blýant mjög mikið, enda strokar hann út roða í kringum augun og getur gert heilmikið. Eins set ég hann inn í augun. Svo er ég með ljósan túpugloss frá Mac. Ég nota Mac vörurnar mjög mikið og er eiginlega alltaf með annan fótinn þar. Förðunin sem ég er með núna er afskaplega klassísk og flott förðun sem hentar við flest tilefni.