Elin Johansson, starfsmaður á aðalskrifstofu H&M í Svíþjóð, segir ekki á dagskrá að opna H&M hér á landi í nánustu framtíð.
Elin Johansson, starfsmaður á aðalskrifstofu H&M í Svíþjóð, segir ekki á dagskrá að opna H&M hér á landi í nánustu framtíð. „Við höfum ekki lagt í vana okkar að opna verslanir með leyfi til rekstrar (franchise) og því erum við ekki í sambandi við íslenska fjárfesta.“ Elin segir fyrirtækið skoða vel möguleika á vexti og fleiri búðum víðsvegar um heim en vilja stjórna vextinum engu að síður.“