Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson
JÓHANNA Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað í samstarfsnefnd um málefni aldraðra í kjölfar flutnings málefna aldraðra frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og tryggingamálaráðuneytisins um áramótin.

JÓHANNA Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað í samstarfsnefnd um málefni aldraðra í kjölfar flutnings málefna aldraðra frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og tryggingamálaráðuneytisins um áramótin. Formaður nefndarinnar er Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismaður.

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra starfar á grundvelli laga um málefni aldraðra nr. 125/1999. Samkvæmt lögum skal ráðherra skipa fimm manna samstarfsnefnd um málefni aldraðra eftir hverjar almennar alþingiskosningar. Áður var nefndin skipuð af heilbrigðisráðherra en skal nú skipuð af félags- og tryggingamálaráðherra.

Nefndin verður ráðherra og ríkisstjórn til ráðuneytis

Ráðherra skipar formann nefndarinnar en aðrir nefndarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefningum og er einn tilnefndur af heilbrigðisráðherra, einn af Landssambandi eldri borgara, einn af öldrunarráði Íslands og einn af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Verkefni samstarfsnefndar um málefni aldraðra eru:

Að vera félags- og tryggingamálaráðherra og ríkisstjórn til ráðuneytis um málefni aldraðra.

Að vera tengiliður milli ráðuneyta, stofnana og samtaka sem starfa að málefnum aldraðra.

Að stjórna Framkvæmdasjóði aldraðra og gera tillögur til ráðherra um úthlutun úr sjóðnum.

Samstarfsnefnd um málefni aldraðra er þannig skipuð:

Ágúst Ólafur Ágústsson, skipaður án tilnefningar, formaður.

Til vara: Ragnhildur

Eggertsdóttir.

Ásta Möller, Reykjavík,

tiln. af heilbrigðisráðherra.

Til vara: Dögg Pálsdóttir.

Margrét Margeirsdóttir, tiln.

af Landssambandi eldri borgara.

Til vara: Helgi K. Hjálmsson.

Guðmundur Rúnar Árnason,

tiln. af Sambandi ísl.

sveitarfélaga.

Til vara: Ragnheiður

Hergeirsdóttir.

Gísli Páll Pálsson, tiln. af

öldrunarráði Íslands.

Til vara: Bernharður

Guðmundsson.

Ritari nefndarinnar er Vilborg Ingólfsdóttir, skrifstofustjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu.