Eftirhermur keppa í þætti Loga Bergmann í kvöld, en atburðir síðustu daga í pólitíkinni ættu að gera keppendum auðveldara fyrir en ella. Stórskotalið þaulreyndra eftirherma mun einnig koma fram og sýna snilli sína.

Eftirhermur keppa í þætti Loga Bergmann í kvöld, en atburðir síðustu daga í pólitíkinni ættu að gera keppendum auðveldara fyrir en ella. Stórskotalið þaulreyndra eftirherma mun einnig koma fram og sýna snilli sína. Meðal þeirra eru Jóhannes Kristjánsson , Hjálmar Hjálmarsson , Björgvin Franz , Atli Rafn og Karl Örvarsson sem sló eftirminnilega í gegn í þætti Loga fyrir jól. afb