MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá stjórn Félags ungra framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni: „Stjórn Félags ungra framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni lýsir yfir mikilli undrun á framgöngu fjölmiðla í hinu svokallaða...

MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá stjórn Félags ungra framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni:

„Stjórn Félags ungra framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni lýsir yfir mikilli undrun á framgöngu fjölmiðla í hinu svokallaða fatakaupamáli, þar sem keypt voru föt fyrir frambjóðendur Framsóknarflokksins í Reykjavík í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Málið hefur allt verið blásið upp og virðist það vera einbeittur vilji fjölmiðla að koma höggi á Framsóknarflokkinn.

Hreinni furðu hlýtur að sæta að slíkt mál fái þvílíka umfjöllun í aðalfréttatímum sjónvarpsstöðvanna, jafnvel álíka mikla umfjöllun og myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Málið er minniháttar og ein milljón í kosningabaráttu sem kostar tugi milljóna getur varla verið verð slíkrar umfjöllunar.

Fatnaðurinn sem um ræðir var notaður í þágu flokksins enda tíðkast í kosningabaráttu að frambjóðendur komi vel fyrir. Algengt er orðið að stílistar komi við sögu í kosningum og má telja víst að slík þjónusta sé greidd úr kosningasjóðum flokkanna ásamt t.d. kynningarefni efstu manna á listum. Hver er munurinn á því hvort um er að ræða stílista, kynningarefni eða fatnað?

Í öllum tilfellum er tilgangurinn að skapa góða ímynd frambjóðenda. Það skiptir einfaldlega ekki máli í hvað kosningasjóðir fara svo lengi sem fjármunirnir eru nýttir í þágu viðkomandi flokks í aðdraganda kosninga.“