Sýning 100 ára setu kvenna í bæjar- og síðar borgarstjórn minnst.
Sýning 100 ára setu kvenna í bæjar- og síðar borgarstjórn minnst. — Árvakur/Árni Sæberg
FYRSTA embættisverk nýs borgarstjóra, Ólafs F. Magnússonar, var að opna sýningu í máli og myndum í Tjarnarsal Ráðhússins þar sem farið er yfir pólitíska vegferð kvenna í bæjarstjórn og síðar borgarstjórn.

Sýningin er liður í því að minnast þess að í gær voru liðin 100 ár frá því konur tóku fyrst sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur, en árið 1908 buðu reykvískar konur fram sérstakan Kvennalista.