Listasafn Íslands býður upp á leiðsögn Þóru Þórisdóttur, myndlistarmanns og gagnrýnanda, um sýningu á verkum Kristjáns Davíðssonar á sunnudaginn klukkan 14.
Listasafn Íslands býður upp á leiðsögn Þóru Þórisdóttur, myndlistarmanns og gagnrýnanda, um sýningu á verkum Kristjáns Davíðssonar á sunnudaginn klukkan 14. Hún mun fjalla um verk listamannsins í tengslum við hið sjálfsprottna í rómantískum hugmyndum um listsköpun og í ljósi listastefna á borð við art brut og fleiri.