Á bílasýningunni sem fram fer í Genf í marsmánuði hyggst Mazda sýna þrennra dyra útgáfu af Mazda 2. Þar á bæ segja menn að bíllinn verði enn sportlegri en fimm dyra útgáfan, sem þó er enginn múrsteinn.
Á bílasýningunni sem fram fer í Genf í marsmánuði hyggst Mazda sýna þrennra dyra útgáfu af Mazda 2. Þar á bæ segja menn að bíllinn verði enn sportlegri en fimm dyra útgáfan, sem þó er enginn múrsteinn. Meðal annarra trompa verður nýr RX-8, Mazda 5-vetnistvinnbíll og hugmyndabíllinn Taiki, sem var fyrst sýndur í Tókýó undir lok síðasta árs.