Vildi maður ekki stundum óska þess að einhver þarna uppi sæi til þess að allt í tölvunni manns væri í virkilega góðum höndum?
Vildi maður ekki stundum óska þess að einhver þarna uppi sæi til þess að allt í tölvunni manns væri í virkilega góðum höndum? Með þessum usb-lykli er ekkert að óttast því hann er í líki Maríu Guðsmóður og er sem hjarta hennar slái þegar gögnin hlaðast inn. Ekki amalegur hlutur til að hafa í veskinu eða á skrifborðinu en lykillinn er hannaður af Spánverjanum Luis Eslava.