Guðjón Kristinsson
Guðjón Kristinsson
STRANDAMAÐURINN Guðjón Kristinsson opnar höggmyndasýningu á Næsta bar kl. 17 í dag. Guðjón hefur sérhæft sig í fornri húsagerðalist og er hann án efa okkar fremsti grjót- og torfhleðslumaður.

STRANDAMAÐURINN Guðjón Kristinsson opnar höggmyndasýningu á Næsta bar kl. 17 í dag. Guðjón hefur sérhæft sig í fornri húsagerðalist og er hann án efa okkar fremsti grjót- og torfhleðslumaður. Hann er líka fyrir löngu orðinn þekktur fyrir höggmyndir sínar sem hann vinnur úr rekavið. Einka- og samsýningar Guðjóns hérlendis sem og erlendis eru orðnar allmargar.

Á Næsta bar sýnir hann skúlptúra sem hann hefur unnið á undanförnum árum.

Næsti bar er á Ingólfsstræti 1a – gegnt Íslensku óperunni.