Þessir sætu taupokar koma frá bandaríska fyrirtækinu Envirosax® en hönnuðir þess vilja breiða umhverfisvænan boðskap um heiminn með fallegri hönnun.
Þessir sætu taupokar koma frá bandaríska fyrirtækinu Envirosax® en hönnuðir þess vilja breiða umhverfisvænan boðskap um heiminn með fallegri hönnun. Þeir geta nýst vel þegar kaupa á í matinn eða bara á fallegum degi þegar þú ert á rölti um bæinn eða á leið í sund. Það má jafnvel sauma sér svona poka sjálfur eigi maður efnisafganga heima við. Sumarlegt og sætt fyrir vorið.