Landbúnaðarvörur munu hækka á næstunni ef spá Haraldar Benediktssonar, formanns Bændasamtaka Íslands, gengur eftir.

Landbúnaðarvörur munu hækka á næstunni ef spá Haraldar Benediktssonar, formanns Bændasamtaka Íslands, gengur eftir. Haraldur segir í pistli á heimasíðu Bændasamtakanna að aukin eftirspurn eftir matvælum og korni til eldsneytisframleiðslu muni leiða til hækkunar áburðarverðs. Kemur hækkunin til viðbótar hækkunum á t.d. fóðri og eldsneyti sem hljóti að verða velt út í verðlagið. hos