MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Samfylkingarfélaginu í Reykjavík: „Á fjölmennum félagsfundi í gær, 22.

MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Samfylkingarfélaginu í Reykjavík:

„Á fjölmennum félagsfundi í gær, 22. janúar, var samþykkt eftirfarandi ályktun:

„Félagsfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík lýsir yfir fullum stuðningi við borgarfulltrúa sína sem nú standa í ströngu vegna óvæntra og ófyrirséðra breytinga á stjórn Reykjavíkurborgar, og þakkar þeim fyrir glæsilegt og árangursríkt starf við stjórn borgarinnar undanfarna mánuði.

Fundurinn vill benda þeim sem mynda hinn væntanlega meirihluta á að hann er vart starfhæfur. Meirihlutinn virðist myndaður með blekkingum og klækjabrögðum. Meirihlutinn byggist á borgarfulltrúa án varamanns. Þær upplýsingar sem liggja fyrir benda ótvírætt til að upp geti komið stjórnarkreppa við stjórn Reykjavíkurborgar. Slíkt ástand er óviðunandi fyrir Reykvíkinga. Hér eru kjörnir fulltrúar almennings í Reykjavík að gera sér leik að lýðræðinu og bregðast umboði sínu.

Félagsfundur Samfylkingarfélagsins í Reykjavík hvetur til þess að borgarfulltrúar hins nýja meirihluta endurskoði ákvörðun sína og hugsi sig betur um áður en í óefni er komið.“