Leikkonan Jessica Alba, sem nú gengur með sitt fyrsta barn, segist þjást af martröðum vegna áhyggna af brjóstagjöfinni. Hún kveðst svo hrædd við að barnið sjúgi geirvörtur sínar að hún á erfitt með að festa svefn og er óróleg á næturnar.

„Ég er stressaðri fyrir brjóstagjöfinni en fæðingunni!“ sagði leikkonan og bætti við að hormónaflæðið væri farið að taka sinn toll. „Það er auðvelt að gera mig reiða eða fá mig til að gráta.“ hþ