Soffía Karlsdóttir söngkona og Örn Árnason leikari syngja perlur úr gömlum íslenskum revíum í Iðnó í kvöld og hefst sýningin kl. 20.

Soffía Karlsdóttir söngkona og Örn Árnason leikari syngja perlur úr gömlum íslenskum revíum í Iðnó í kvöld og hefst sýningin kl. 20. Lögin eru frá fyrri helmingi síðustu aldar og hafa mörg hver lifað með þjóðinni en önnur eru minna þekkt og hafa lítið fengið að hljóma á undanförnum árum og áratugum.

Dagskráin var upphaflega sett upp á síðasta ári en er nú komin aftur á fjalirnar.

Aðgangseyrir er 2.900 krónur og er léttur kvöldverður innifalinn í verðinu.

Einnig verða sýningar þriðjudaginn 29. janúar kl. 14 og þriðjudaginn 5. febrúar kl. 14.