Þurr húð getur verið vandamál á veturna og getur reynst erfitt að finna rétta kremið fyrir húðina. Með aldrinum verður húðin þurrari þar sem fitukirtlarnir framleiða minni húðfitu.

Þurr húð getur verið vandamál á veturna og getur reynst erfitt að finna rétta kremið fyrir húðina. Með aldrinum verður húðin þurrari þar sem fitukirtlarnir framleiða minni húðfitu. Þetta getur valdið húðþurrki og er því mikilvægt að leita leiða til þess að bæta húðinni það upp. Það er ýmislegt hægt að gera til þess að vinna bug á þurri húð þannig að hún endurheimti ljóma sinn og hraustlegt yfirbragð.

Hugað að húðinni

Hugsaðu um húðina á hverjum degi með því að hafa nokkur atriði í huga.

1. Ekki liggja lengi í heitu baði því að það þurrkar húðina verulega upp. Farðu frekar í sturtu ef þú hefur tækifæri til.

2. Berðu á þig andlitskrem kvölds og morgna á hreina húð og berðu krem reglulega á líkamann.

3. Drekktu mikið vatn. Vatnið gefur húðinni raka og er heilbrigði húðarinnar nauðsynlegt.

4. Berðu reglulega á þig varasalva ef varaþurrkur er einnig vandamál og hugaðu vel að svæðinu í kringum augun.

5 . Burstaðu húðina reglulega til þess að losa hana við dauðar húðfrumur.

6. Borðaðu hollan og góðan mat. Gott mataræði hefur mikið að segja og verður húðin ekki falleg nema borðaður sé næringarríkur matur. Matur sem er ríkur að góðum fitusýrum gerir húðinni gott.