Margt hefur gerst síðan Hyundai kom fyrst á Íslandsmarkað og til marks um það hefur þessi fimmti stærsti bílaframleiðandi heims nú hafið innreið á lúxusbílamarkaðinn.
Margt hefur gerst síðan Hyundai kom fyrst á Íslandsmarkað og til marks um það hefur þessi fimmti stærsti bílaframleiðandi heims nú hafið innreið á lúxusbílamarkaðinn. Hyundai Genesis er lúxusbíll sem dregur dám af 5-línu BMW, er afturhjóladrifinn og með V-8-vél sem á að koma bílnum í hundrað á tæpum sex sekúndum og skila fleiri hestöflum og Newtonmetrum en véla rnar í Lexus GS450, BMW 750i og Audi A8.