Guðmundur Jónsson fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins verður ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum en ein þeirra er undir lögaldri.

Guðmundur Jónsson fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins verður ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum en ein þeirra er undir lögaldri. Fram kom á Stöð tvö að Guðmundi sé gefið að sök að hafa notfært sér andlega annmarka kvennanna til þess að hafa við þær samræði á meðan á meðferð þeirra stóð. Guðmundur hefur allan tímann neitað staðfastlega sök. mbl.is