* Heyrst hefur að Barði Jóhannsson sé kominn langt með sína næstu Bang Gang-plötu og stefnt sé að því að gripurinn komi út samtímis á Íslandi og á meginlandi Evrópu í marsmánuði.

* Heyrst hefur að Barði Jóhannsson sé kominn langt með sína næstu Bang Gang-plötu og stefnt sé að því að gripurinn komi út samtímis á Íslandi og á meginlandi Evrópu í marsmánuði.

Platan hefur enn ekki hlotið nafn en á meðal þeirra sem taka þátt í gerð hennar er franska tónlistarkonan Keren Ann sem einnig skipar dúettinn Lady & Bird með Barða.

Útgáfufyrirtæki Barða og Sigurðar Pálma Sigurbjörnssonar, From Nowhere Records, hyggst gefa plötuna út í Bandaríkjunum síðar á árinu.