Ghd-vörurnar skemma ekki á þér hárið! Hægt er að fá kennsludisk með járninu til að ná góðum tökum á því.
Ghd-vörurnar skemma ekki á þér hárið! Hægt er að fá kennsludisk með járninu til að ná góðum tökum á því.
Fallegt og heilbrigt hár er prýði hverrar konu. Ghd er í fararbroddi í heiminum á sviði hárgreiðslu með hita og nú er hægt að fá þær vörur hjá hágreiðslustofunni Hárbeitt í Hafnarfirði. Ef þú hefur áhyggjur af langvinnum hitaskemmdum – slakaðu á.

Fallegt og heilbrigt hár er prýði hverrar konu. Ghd er í fararbroddi í heiminum á sviði hárgreiðslu með hita og nú er hægt að fá þær vörur hjá hágreiðslustofunni Hárbeitt í Hafnarfirði.

Ef þú hefur áhyggjur af langvinnum hitaskemmdum – slakaðu á. Vegna ghd thermodynamics™ geturðu skartað bæði fallegu og heilbrigðu hári. Þessi fyrsta vörulína heims sem er sérstaklega ætluð hármótun með hita (frá hárþurrkum til hitajárna og annars eins) mun hreinsa og næra, vernda, móta og fínpússa hárgreiðsluna.

Þetta eru sléttujárnin sem hafa mótað og sléttað hár á óteljandi tískusýningum. Frægustu og fremstu stílistar heims, ofurfyrirsæturnar og fræga fólkið kjósa að nota ghd-sléttujárnin þar sem þau eru nýstárleg og einfaldlega best. Þau gefa hárinu jafna og slétta áferð; hitastjórnunin þýðir að hárið er ekki togað og teygt og veitir óviðjafnanlegan heilbrigðan glans. Já, þú getur sléttað hárið – en þú getur einnig gert alls kyns krullur, liði, bylgjur, slöngulokka, gefið hárinu lyftingu, gert það snarkrullað og nánast allt sem þér dettur í hug að gera við hárið á þér. Hin ótrúlega fjölhæfni ghd-járnanna veitir þér möguleika á að skipta um stíl eins oft og þú skiptir um föt.

Þegar hiti er notaður við hármótun þarf að undirbúa hárið vel. Ghd thermodynamics™ skref 1 hefur að geyma úrval af vörum, sjampó, hárnæringar og meðferðarvörur sem leggja fullkominn grunn að sköpun ykkar. Þær endurnýja, yngja upp og styrkja hárið, vernda gegn útfjólubláum geislum og veita langtímavörn og heilbrigði fyrir hárið.