— Ljósmynd/Árni Torfason
VEGNA athugasemda íbúa á Álftanesi við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar segir Sigurður Magnússon, bæjarstjóri Álftaness, að undirskriftalistar bæjarbúa sýni hversu annt þeir láti sér um nærumhverfi sitt og fagnar Sigurður því.

VEGNA athugasemda íbúa á Álftanesi við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar segir Sigurður Magnússon, bæjarstjóri Álftaness, að undirskriftalistar bæjarbúa sýni hversu annt þeir láti sér um nærumhverfi sitt og fagnar Sigurður því. „Bæjarstjórn og skipulags- og byggingarnefnd munu nú fara vandlega yfir efni þeirra og gera breytingar sem koma til móts við þær athugasemdir sem þar eru gerðar, en mikilvægt er að framkvæmdir geti hafist sem fyrst.“

Sigurður segir ánægjulegt að þær ábendingar sem hafa borist miðist við fá og afmörkuð atriði og að grundvöllur skipulags hins græna miðbæjar haldi sér.