Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað í samstarfsnefnd um málefni aldraðra í kjölfar flutnings málefna aldraðra frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og tryggingamálaráðuneytisins.

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað í samstarfsnefnd um málefni aldraðra í kjölfar flutnings málefna aldraðra frá heilbrigðisráðuneytinu til félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Formaður hennar er Ágúst Ólafur Ágústsson. Verkefni samstarfsnefndar um málefni aldraðra eru að vera til ráðuneytis um málefni aldraðra, vera tengiliður milli ráðuneyta, stofnana og samtaka og stjórna Framkvæmdasjóði aldraðra, segir í fréttatilkynningu. aak