Jón Bjarnason
Jón Bjarnason
Jón Bjarnason skrifar um borgarstjórnarmál: "Íbúar Reykjavíkur sitja uppi með pólitískan harmleik sem er stýrt af æðstu stjórnendum Sjálfstæðisflokksins og ekki sér fyrir endann á."

FRAMGANGA forystumanna Sjálfstæðisflokksins við myndun nýs meirihluta í Reykjavíkurborg hlýtur að vekja fordæmingu. Eitt er að beita pólitískum klókindum og annað að beita óheilindum og misnotkun.

Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins segir „maður vonar auðvitað að þetta gangi núna...“.

Augljós aðkoma hans að þessari meirihlutamyndun í Reykjavík er umhugsunarverð, ekki síst vegna vinnubragðanna sem beitt er. Svo virðist sem hinn almenni borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hafi lítið vitað af málinu fyrr en það var um garð gengið. Þau stóðu frammi fyrir orðnum hlut og það var engin gleði í svipnum þegar hópurinn var myndaður.

Ólafur F. Magnússon lýsti því vel í fréttaviðtali hvernig honum var talin trú um að ekki væri spurningin um hvort heldur hver myndi ganga til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn.

Öllum sem vildu vita mátti vera ljóst að ekkert pólitískt bakland var fyrir myndun þessa nýja meirihluta enda var það ekki einu sinni kannað.

Allir borgarfulltrúar og íbúar Reykjavíkur sitja uppi með pólitískan harmleik sem er stýrt af æðstu stjórnendum Sjálfstæðisflokksins og ekki sér fyrir endann á.

Er nú ekki nóg komið?

Höfundur er þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.

Höf.: Jón Bjarnason