„Ég er á fullu að sauma árshátíðarkjóla og allavega flíkur eftir pöntunum,“ svarar Birta Björns fatahönnuður. „Búðin er alltaf full af nýjum vörum en allan ársins hring er ég að taka við pöntunum. Fólk fer einfaldlega inn á Juniform.
„Ég er á fullu að sauma árshátíðarkjóla og allavega flíkur eftir pöntunum,“ svarar Birta Björns fatahönnuður. „Búðin er alltaf full af nýjum vörum en allan ársins hring er ég að taka við pöntunum. Fólk fer einfaldlega inn á Juniform.net og velur sér flík. Yfirleitt kemur fólk með nokkrar hugmyndir og við setjum þær saman. Já, ég get saumað eftir óskum í hvaða stærð sem er og breytt eftir óskum hvers og eins. Það tekur um tvær vikur að sauma flíkurnar en það fer eftir því hvað mikið er að gera.“