Bílás - bílasala Akraness tók um síðustu helgi í notkun nýjan og glæsilegan sýningarsal við Smiðjuvelli á Akranesi. Í salnum er pláss fyrir 16 nýja bíla, auk þess sem rúmgott útisvæði tekur allt að 100 notaða sem seldir eru í umboðssölu.
Bílás - bílasala Akraness tók um síðustu helgi í notkun nýjan og glæsilegan sýningarsal við Smiðjuvelli á Akranesi. Í salnum er pláss fyrir 16 nýja bíla, auk þess sem rúmgott útisvæði tekur allt að 100 notaða sem seldir eru í umboðssölu. Fyrirtækið heldur upp á 25 ára afmæli sitt á árinu en það er meðal annars með umboð fyrir Heklu, Kia og B&L.