[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Byssusýning Starfsár Veiðisafnsins á Stokkseyri hefst með árlegri byssusýningu í samvinnu við verslunina Vesturröst. Sýningin er opin laugardag og sunnudag kl. 11-18 í húsakynnum safnsins Eyrarbraut 49.

Vítamín á Vélsmiðjunni Hljómsveitin Vítamín leikur fyrir dansi á Vélsmiðjunni á Akureyri á föstudags- og laugardgskvöld. Húsið verður opnað kl. 22 og er frítt inn til miðnættis.

Dísel í Kópavogi Hljómsveitin Dísel gerir víðreist um helgina og leikur á Players í Kópavogi í kvöld og á Lukku-Láka í Grindavík annað kvöld.

Benassi á Broadway Benny Benassi kemur fram á vetrarhátíð Techno.is á Broadway á laugardagskvöld. Fyrri sýningin er ætluð fólki á aldrinum 16-20 ára og hefst kl. 20. Sú síðari hefst kl. 00:30.

Dalton í bænum Hljómsveitin Dalton leikur á Players í Kópavogi á laugardagskvöld.

Benny Crespo og félagar Benny Crespo's Gang koma fram á tónleikum á Dillon í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 23:30 og er aðgangur ókeypis.

Styrktartónleikar Félag anti-rasista heldur styrktartónleika á Gauki á Stöng í kvöld kl. 22.