Hjónin Craig og Sondra Harrington í Texas-ríki í Bandaríkjunum fara ekki hefðbundnar leiðir við að finna nöfn á börnin sín og gefa lítið fyrir tískustefnur í þeim efnum.

Hjónin Craig og Sondra Harrington í Texas-ríki í Bandaríkjunum fara ekki hefðbundnar leiðir við að finna nöfn á börnin sín og gefa lítið fyrir tískustefnur í þeim efnum.

Fyrsta barnið var skírt Lexus en skömmu fyrir skírnina mun Lexus-bíll hafa ekið framhjá heimili þeirra og húsbóndanum þótt mikið til hans koma.

Reyndar höfðu hjónin eiginlega ákveðið að fyrsta barnið skyldi heita Porsche en þau viku frá því vegna hrifningar heimilisföðurins í garð japanska lúxusbílsins.

Þegar Harrington-hjónin komust svo að raun um að frúin gengi með tvíbura urðu þau sammála um að nefna þau eftir tveimur þýskum framleiðendum lúxusbíla. Voru börnin því skírð Porsche og Audi.