Glæsibifreið sem sagt er að tilheyrt hafi Sovétleiðtoganum Leoníd Brezhnev verður seld á internetuppboði í Þýskalandi í dag. Bíllinn, sem er Mercedes Benz 600, er einn af aðeins 2.190 sem framleiddir voru. Bíllinn er í prýðisgóðu ástandi.

Glæsibifreið sem sagt er að tilheyrt hafi Sovétleiðtoganum Leoníd Brezhnev verður seld á internetuppboði í Þýskalandi í dag.

Bíllinn, sem er Mercedes Benz 600, er einn af aðeins 2.190 sem framleiddir voru. Bíllinn er í prýðisgóðu ástandi. Þykir það benda til þess að Brezhnev sjálfur, annálaður ökuníðingur, hafi sjaldan setið við stýrið. aij