Írsku rokkararnir í U2 eru að undirbúa tónleikaröð á stóra 02-sviðinu í Lundúnum, sem Led Zeppelin lék á í desember síðastliðnum.

Írsku rokkararnir í U2 eru að undirbúa tónleikaröð á stóra 02-sviðinu í Lundúnum, sem Led Zeppelin lék á í desember síðastliðnum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sögusagnir um meinta tónleika U2 á þessu sviði komast á kreik en umboðsmaður þeirra, Paul McGuinness, hefur nú staðfest þær. „Sviðið býður upp á mikla möguleika fyrir U2,“ sagði hann í viðtali. Sveitin er um þessar mundir í hljóðveri með Brian Eno að vinna sína 12. plötu. re