Hótelerfinginn Paris Hilton gerði sér lítið fyrir og kyssti leikkonuna Elishu Cuthbert í bak og fyrir á skemmtistað í Stóra eplinu í vikunni.

Hótelerfinginn Paris Hilton gerði sér lítið fyrir og kyssti leikkonuna Elishu Cuthbert í bak og fyrir á skemmtistað í Stóra eplinu í vikunni. Með athæfi þessu tókst stjörnunni enn einu sinni að koma sér á forsíður slúðurblaðanna, en nú kappkosta fjölmiðlar ytra að gera því skóna að Paris hrífist af öðrum konum. Þannig ætlaði allt um koll að keyra þegar hún gerði sér dælt við Katherine Moennig úr sjónvarpsþáttunum The L Word á dögunum, en téðir þættir fjalla á opinskáan hátt um lesbíur og samneyti þeirra. Paris lét það ekki nægja og í kjölfarið hélt hún rakleiðis á klúbb fyrir samkynhneigða í Los Angeles. Þaðan hélt hún síðar um kvöldið og leiddi vinkonu sína, Courtenay Semel, og ráku menn upp stór augu vegna náinna samskipta þeirra. Eftir kossaflensið við Elishu í vikunni vilja menn því meina að Paris sé búin að venda kvæði sínu í kross og komi nú til með að herja á markaðinn í leit að konu.

„Þær byrjuðu allt í einu að kyssast og voru svo hvor ofan í annarri,“ sagði einn áhorfenda á staðnum. hþ