— Árvakur/Árni Sæberg
ÍSLENSKU bókmenntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Forseti Íslands afhenti verðlaunin. Það voru rithöfundarnir Þorsteinn Þorsteinsson og Sigurður Pálsson sem hlutu verðlaunin í ár.

ÍSLENSKU bókmenntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Forseti Íslands afhenti verðlaunin.

Það voru rithöfundarnir Þorsteinn Þorsteinsson og Sigurður Pálsson sem hlutu verðlaunin í ár. Þorsteinn í flokki fræðibóka fyrir bókina Ljóðhús: Þættir um skáldskap Sigfúsar Daðasonar og Sigurður í flokki fagurbókmennta fyrir Minnisbók, endurminningabók skáldsins frá árum hans í Frakklandi.

Félag íslenskra bókaútgefenda veitir verðlaunin og árið í ár markar 20 ára afmæli þeirra. | 18