Þú og makinn eruð í fríi og nú á allt að vera svo rómantískt og gott. En ekki vera allt of upptekin/n af því að hlutirnir eigi endilega að vera einhvern veginn.
Þú og makinn eruð í fríi og nú á allt að vera svo rómantískt og gott. En ekki vera allt of upptekin/n af því að hlutirnir eigi endilega að vera einhvern veginn. Það getur nefnilega tekið ykkur smá tíma að stilla saman strengi eftir stress í vinnunni og daglega rútínu. Nú er kannski kominn tími til að fara saman í sturtu eða prófa nýja stellingu, en ef þið eruð frekar í stuði til slappa af saman fyrir framan sjónvarpið eða borða nammi úr mínibarnum er það líka allt í lagi. Það getur verið gott að nota frí til að tala saman um heima og geima en reynið þá að tala ekki of mikið um vinnuna og stressið heima. Látið frekar eins og þið séuð að kynnast upp á nýtt. Síðan er skemmtilegt að dressa sig svolítið upp fyrir makann. Maður er ekki oft í sínu fínasta taui heima fyrir svo að makinn ætti að kunna að meta það.