Eftir erfiða tíma hjá Alfa Romeo getur lífið bara skánað. Eða hvað? Nú hefur forstjóri Fiat, móðurfyrirtækis Alfa Romeo, lagt fyrirtækinu nýjar línur. Fyrir júnímánuð 2010 skal fyrirtækið hafa tvöfaldað sölu sína og snúið taprekstri í hagnað.
Eftir erfiða tíma hjá Alfa Romeo getur lífið bara skánað. Eða hvað? Nú hefur forstjóri Fiat, móðurfyrirtækis Alfa Romeo, lagt fyrirtækinu nýjar línur. Fyrir júnímánuð 2010 skal fyrirtækið hafa tvöfaldað sölu sína og snúið taprekstri í hagnað. Ný módel og endurreið inn á Bandaríkjamarkað gætu dugað til að snúa við blaðinu, en ljóst er þó að þeir þúsund dagar sem til stefnu eru verða ekki allir auðveldir.