Diaz Komin með nóg af Hollywood.
Diaz Komin með nóg af Hollywood. — Reuters
AÐDRÁTTARAFL Hollywood virðist eitthvað vera að dala. Nú hefur stórstjarnan Cameron Diaz ákveðið að flytja þaðan í burtu og til New York. Hún hefur oft talað um hatur sitt á þeim fjölda paparazzi-ljósmyndara sem eru í Los Angeles og telja menn þá m.a.

AÐDRÁTTARAFL Hollywood virðist eitthvað vera að dala. Nú hefur stórstjarnan Cameron Diaz ákveðið að flytja þaðan í burtu og til New York. Hún hefur oft talað um hatur sitt á þeim fjölda paparazzi-ljósmyndara sem eru í Los Angeles og telja menn þá m.a. vera eina ástæðu þess að hún ætlar að flytja þaðan.

„Hollywood er skemmtilegur staður, hann býður upp á mikið en getur einnig tekið mikið frá þér,“ lét hún hafa eftir sér nýlega.

Í vikunni sást til Diaz skoða íbúðir á Manhattan. „Cameron hefur augastað á íbúð með einu svefnherbergi í tveggja ára gamalli byggingu í Vestur-Chelsea. Hún hefur verið að skoða íbúðir og féll algjörlega fyrir þessari,“ sagði einn um leit hennar.