Hæstiréttur dæmdi í gær 39 ára karlmann í 10 mánaða fangelsi fyrir að hafa haft í vörslum sínum 4.048 ljósmyndir og 7 hreyfimyndir með barnaklámi. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt manninn í 12 mánaða fangelsi vegna brotsins.

Árið 2001 var ákærði dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum. Árin 1998 og 2003 var hann dæmdur fyrir vörslu barnakláms.