TIGER Woods heldur sínu striki á atvinnumótaröðunum í golfi. Í gær sýndi hann snilldartakta á fyrsta keppnisdegi Dubai Desert-mótsins sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Tiger lék á sjö höggum undir pari, 65 höggum.
TIGER Woods heldur sínu striki á atvinnumótaröðunum í golfi. Í gær sýndi hann snilldartakta á fyrsta keppnisdegi Dubai Desert-mótsins sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Tiger lék á sjö höggum undir pari, 65 höggum. Hann er efstur og með tveggja högga forskot á 11 kylfinga sem eru jafnir í 2.-12. sæti. Miquel Ange Jimenez frá Spáni er einn þeirra en hann fór holu í höggi í gær.